Archive for the 'Nýjar bækur' Category

Ch 16 og Ch 17 e. Sindra Frey Steinsson

Ch 16

Flauelsormurinn er silkimjúkur að utan, fallegt flauelsskinnið sem hann dregur nafn sitt af er mjúkt viðkomu og hann er undrafagur ásýndum. Flauelsormurinn lokkar til sín skordýr sem þrá ekkert heitara en mökun á fengitímanum. Þetta slungna kvikindi læsir svo oddhvössum vígtönnum sínum djúpt í æxlunarfæri fórnarlambsins og sýgur allt sæðið burt. Í stað sæðisins spýtir flauelsormurinn banvænu eitri í sárin sem sýkir dýrin miskunarlaust. Í snýkjudýrinu 1. Agapanthus rientalis/umbellatus breiðist eitrið út í meltingarveginn og í örverur í meltingarveginum. Þegar Agapanthus ræðst svo á dýr þar á meðal Homo Sapiens dreifast þessar örverur um blóðrásina og valda ástandi eða heilkenni sem nefnt hefur verið Adonis röskun, en er oft ruglað saman við ofsóknarbrjálæði. Þekkt hliðarverkun ástandsins er svokölluð ormapíka.

3 ljóð úr nýrri bók eftir Sólveigu Maríu Svavarsdóttur

Farvegur

Litla stelpan
í gula kjólnum
með
hvolpinn.

Litla stelpan
með tárvota
hvarma.

Litla stelpan
í stutta
pilsinu.

Aðbókin eftir Gísla Þór Ólafsson

AðbókinÚt er komin önnur ljóðabók Gísla Þórs Ólafssonar, Aðbókin. Sem fyrr teiknaði Óli Þór Ólafsson kápumyndina. Hægt er að panta bókina með því að senda póst á thorgillon@gmail.com
Lafleur gefur út.

Afmæli

Að ég sé heppinn að við náðum ekki saman
hefði annars þurft að kaupa handa henni

söngur steinasafnarans - ný ljóðabók eftir Sjón

Söngur steinasafnaransÚt er komin hjá Bjarti bókaforlagi ljóðabókin söngur steinasafnarans eftir Sjón. Sjón, (f. 1962), er ljóðskáld og sagnahöfundur sem hóf feril sinn með útgáfu ljóðabókarinnar Sýnir, sumarið 1978. Á níunda áratugnum var hann í fararbroddi þeirra ungu skálda sem leituðust við að endurnýja íslenska ljóðlist með tækjum súrrealismans. Jafnframt því að hafa gefið út ellefu ljóðabækur hefur Sjón ritað söngtexta, líbrettó, kvikmyndahandrit og sex skáldsögur. Hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir einn söngtexta sinna í kvikmyndinni Dancer in the Dark, og fyrir skáldsöguna Skugga-Baldur hlaut hann bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2005.

Þjónn, það er Fönix í öskubakkanum mínum e. Eirík Örn Norðdahl

Þjónn, það er Fönix í öskubakkanum mínum!Ágætir landsmenn.

Nýhil kynnir, bísperrt af stimamýkt og frjóvgað af ákefð:

*Þjónn, það er FÖNIX Í ÖSKUBAKKANUM mínum*
eftir Eirík Örn Norðdahl

Hinn undarlegi fítónn og angurgapi íslenskrar ljóðalistar, Eiríkur Örn Norðdahl, galopnar níðþröngar sjónir hennar með bók sem á sér ekki hliðstæðu í bókaútgáfu hérlendis síðan Kalda stríðinu lauk: 200 blaðsíðna þrekvirki með engu nema ljóðum: * Þjónn, það er FÖNIX Í ÖSKUBAKKANUM mínum * Ljóðin í bókinni bera “hreinni, tærri maníu” höfundarins órækt vitni:

Blótgælur e. Kristínu Svövu Tómasdóttur

Blótgælur- fréttatilkynning frá Bjarti -

Blótgælur eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur

Út er komin hjá bókaforlaginu Bjarti ljóðabókin BLÓTGÆLUR eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur.

Kristín Svava Tómasdóttir (f. 1985) er ljóðskáld í Reykjavík. Blótgælur er hennar fyrsta bók.

hann sagði:

Ný bók: Hlaupár e. Þór Stefánsson

HlaupárÚt er komin ljóðabókin „Hlaupár” eftir Þór Stefánsson. Í bókinni eru 366 hækur, jafnmargar og dagarnir í hlaupárinu. Það er því tilvalið fyrir lesendur að fara með eina hæku út í hvern dag næsta árið. Bókinni er skipt í fjóra kafla eftir árstíðunum.
„Hlaupár” er sjöunda frumsamda ljóðabók Þórs sem hefur einnig sent frá sér sjö bækur með þýddum ljóðum, nú síðast sýnisbækur íslenskra skálda á frönsku og Québecskálda á íslensku.
Sigurður Þórir sér um útlit bókarinnar og teiknar myndir í hana. Þeir félagar hafa áður átt farsælt samstarf því að þetta er þriðja bók Þórs sem Sigurður Þórir myndskreytir en hann hefur séð um útlit og kápumynd fleiri bóka skáldsins.
Yrkisefni bókarinnar eru margvísleg. Eins og í fyrri verkum Þórs eru í bókinni hugleiðingar um hvunndaginn og mannlegar tilfinningar eru rannsakaðar. Ástin fær sinn skerf en það heyrir kannski til nýmæla í bókum Þórs að hér er einnig ort um hatrið. „Hlaupár” er að miklu leyti ort í Frakklandi en Þór gegndi stöðu sendikennara við háskólann í Lyon síðastliðin þrjú ár.
„Hlaupár” er 137 blaðsíður og ljóðaforlagið DEUS gefur bókina út.