Archive for the 'Garðskálinn' Category

Tregawött: 1. tbl: Leikur!

Dömur mínar og herrar, þá er komið að því! Eftir margra mánaða yfirlegu rísa Tregawöttin upp úr djúpinu að nýju og völlurinn er meiri en nokkru sinni fyrr! Eitt sinn birtust stakar færslur óreglulega - en nú koma heilu tölublöðin með tveggja mánaða fyrirvara, og nýtt þema og nýr ritstjóri í hvert sinn. Fyrsta tölublaðinu ritstýrði Eiríkur Örn Norðdahl með þemanu „Leikur“ - því næsta ritstýrir Jón Örn Loðmfjörð með þemanu „Usli“ (hægt er að senda Jóni efni hið snarasta á jonorn@gmail.com) og er von á því þann 1. desember næstkomandi.

28 aðilar koma að fyrsta tölublaðinu - þar af tvær hreyfingar og fjöldinn allur af útlendingum (í þýðingu og sinni eigin heimatilbúnu íslensku) og íslendingum á hinum ýmsustu tungumálum (við erum múltíkúltí).

Smellið hér fyrir herlegheitin.

Efnisyfirlit gæti litið svona út:

Ritstjóraspjall: EÖN útskýrir markmið sín í ritstjórastól
Útláísl: a.rawlings, Marko Niemi, Derek Beaulieu, Jon Høyer, Anonyme Breve, Hugh Thomas og Gary Barwin skrifa orginal texta á íslensku, hvert með sínu eigin nefi (án þess að kunna málið).
Áræði: Áræðishópurinn sýnir brot úr bókverki sínu, hinni umskrifuðu Á bláþræði.
Danskt lípógram: Hugh Thomas yrkir án danskra bókstafa.
Garðskálinn: Herra Vídalín og herra Loðmfjörð ræða leikaraskap.
Ævintýri sjúklegu stelpunnar: Brot úr bók Unu Bjarkar Sigurðardóttur.
Viðtal við Steinar Braga.
Pípari ástarinnar: Haukur Már Helgason og Bryndís Björgvinsdóttir stunda kyngervisusla.
For Susanna: Mansöngur HMH á ensku, þýsku og íslensku.
Hefnd skálds og gagnrýnanda: Ritgerð eftir Charles Bernstein.
Iceland Report on the Observance of Standards and Codes: Hljóð&myndljóð eftir Eirík Örn Norðdahl.
Úr Húðlitri auðn Kristínar Eiríksdóttur í danskri þýðingu Ninu Sos Vinther.
Flarf: Ljóð eftir Linh Dinh. K. Silem Mohammad, Ritu Dahl, Nödu Gordon, Shönnu Compton, Sharon Mesmer, Stan Apps og Rodney Koeneke.
Opið bréf til Georges Bataille: Kári Páll Óskarsson.
3 ljóð eftir Kára Tulinius.

Smellið hér fyrir herlegheitin.

Garðskálinn - 2. þáttur annarrar seríu

[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=yW3SRscjEsw[/youtube]

Garðskálinn er risinn úr hýði sínu eftir langan – en fagurfræðilega nauðsynlegan – vetrardvala, en þeir Jón og Arngrímur láta engan bilbug á sér finna fremur en venjulega. Ef eitthvað er mæta þeir hálfu stórkostlegri til leiks í því augamiði að rífa sljóan almenning uppúr dróma sainnuleysis og heimsku (með fullri hógværð).

Garðskálinn er stoltur að kynna glænýja byltingakennda kenningu um endalok hinnar þrúgandi kúgunar landsins ungskálda, sem hingað til hafa ráðið allri bókmenntaumræðu með viðurstyggilega skrúðmæltu náðarvaldi sínu!

Þátturinn er næstum því í lit að þessu sinni, fyrir utan að litarásirnar á myndavélunum voru bilaðar og að settið á til að skipta litum alveg að óvörum, sem hefur slæm áhrif á ljósnæmi viðkvæmra vélanna. Arngrímur var að kaupa sér nýja skyrtu sem hann bara varð að sýna utan á sér. Jón var í sömu fötum og alltaf.

Garðskálinn - 1. þáttur annarrar seríu

[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=aHk4Bj-cAQs[/youtube]

Gífurlegar vinsældir bókmenntaþáttarins Garðskálans hafa væntanlega ekki farið framhjá æstum aðdáendum íslenskra bókmennta - með sín skínandi fögru augu - en fyrsta sería þáttaraðarinnar var jafnvel enn æsilegri en hún var beint-í-mark, og er þá tekið djúpt í öllum árum. Leiftrandi gáfnafari tvímenninganna Loðmfjörð og Vídalín  er ekki líkjandi við neitt - nema þá kannski allra uppljómuðustu augnablik hins apostrófíska Bernarnds Pivot. Eftir miklar - langar, strangar og þröngar - samningaviðræður hafa Tíu þúsund tregawött fest kaup á sýningarréttinum á annarri seríu þessarar mögnuðu þáttaraðar. Í þessum fyrsta þætti seríunnar er rætt við rithöfundinn Hauk Má Helgason um bók sem enginn veit hver skrifaði.

Frekari upplýsingar um Garðskálann má nálgast hér.