Tíuþúsund tregawött
	<language>en</language>
Ljóðlistarlistinn
		<description>Tíu þúsund tregawött vilja vekja athygli á nýjum póstlista um ljóðlist. Hægt er að skoða færslur á http://groups.google.com/group/ljodlist og skrá sig hér að neðan. Listinn er öllum opinn og óritstýrður - þangað er hægt að senda línu um hvaðeina sem tengist ljóðlist.
 Netfang:
Tregawött: 1. tbl: Leikur!
		<description>Dömur mínar og herrar, þá er komið að því! Eftir margra mánaða yfirlegu rísa Tregawöttin upp úr djúpinu að nýju og völlurinn er meiri en nokkru sinni fyrr! Eitt sinn birtust stakar færslur óreglulega - en nú koma heilu tölublöðin með tveggja mánaða fyrirvara, og nýtt þema og nýr ritstjóri ...</description>
Úr Provence í endursýningu e. Ófeig Sigurðsson
Dagarnir eru sundlaugabláir
& þarna hátt uppi
á bringusundi
mynstra fljúgandi
hvítir sæhestar
óráðanlega krossgátu
ég sé þá stíma
á hvern annan
heljarstór vængur
hrapar niður
gegnum þakið
havæskyrtum rignir
yfir akurinn
þarna hátt uppi
ofan við mig
heilu hóparnir
af fólki með metnað
að fara eitthvað
troðandi marvaðann
þarna uppi
heilu hóparnir
að fara eitthvað
að fara bara eitthvað.
Áður birt í Bókinni Provence í endursýningu, (Apaflasa 2008) og safnritinu Gáttir/Gateways (Nýhil ...</description>
Sjálfsmorð eftir Louis Aragon
		<description>A á b d ð e é f
g h i í j k l
m n o ó p r
s t u ú v
x y ý
þ æ
ö
Louis Aragon
Kristian Guttesen þýddi. </description>
Vandasamt að keyra bíl
Ljóðið fann Eiríkur Örn Norðdahl. </description>
Óorð eftir Hauk Má Helgason
		<description>Óorð
Smellið á 'spila'.
Ljóðið er unnið úr andardrætti og orðum Sigfúsar Daðasonar.  Haukur Már Helgason er meðal þeirra sem koma munu fram á ljóðahátíð Nýhils undir lok næsta mánaðar. </description>
Ljóðahátíð Nýhils
		<description>Sex erlend skáld og tólf íslensk lesa í ljóðapartíum á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins og taka þátt í umræðum með Birnu Bjarnadóttur og Ármanni Jakobssyni í Norræna húsinu á Fjórðu alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils. Glæsilegt þýðingarit verður gefið út samhliða hátíðinni, sem fer fram 22.-24. ágúst næstkomandi.
Fjórða alþjóðlega Ljóðahátíð Nýhils verður haldin hátíðleg ...</description>
Ch 16 og Ch 17 e. Sindra Frey Steinsson
		<description>Ch 16
Flauelsormurinn er silkimjúkur að utan, fallegt flauelsskinnið sem hann dregur nafn sitt af er mjúkt viðkomu og hann er undrafagur ásýndum. Flauelsormurinn lokkar til sín skordýr sem þrá ekkert heitara en mökun á fengitímanum. Þetta slungna kvikindi læsir svo oddhvössum vígtönnum sínum djúpt í æxlunarfæri fórnarlambsins og sýgur allt ...</description>
Stefnur e. Bjarna Bernharð
		<description>Tíminn er ekki liðinn
fyrr en veraldarskeiðið
er á enda runnið.
Munu fyrri stefnur
úr mannlífsflórunni
vakna til lífsins
og upp hefja að nýju
lífsins ádrepu.
Í krafti orðsins
eða hvers sköpunarmáttar
opna vitund þjóðar
draga dár
að tíðarandanum
og hvetja til uppreisnar
í mannvitsbrekkunni.
Bjarni Bernharður </description>
Garðskálinn - 2. þáttur annarrar seríu
		<description>[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=yW3SRscjEsw[/youtube]
Garðskálinn er risinn úr hýði sínu eftir langan – en fagurfræðilega nauðsynlegan – vetrardvala, en þeir Jón og Arngrímur láta engan bilbug á sér finna fremur en venjulega. Ef eitthvað er mæta þeir hálfu stórkostlegri til leiks í því augamiði að rífa sljóan almenning uppúr dróma sainnuleysis og heimsku (með ...</description>