Archive for April, 2007

Handsprengja í morgunsárið

Handsprengja í morgunsáriðTíu þúsund tregawöttum hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Nýhil:

Kæri heimur - fjölmiðlamenn, oflátungar, krúsídúllur, einræðisherrar og allra þjóða yndislingar.

Bomburnar eru byrjaðar að falla, sírenuvæl fyllir allar hlustir, vessar Íslendinga flæða niður torg og götur - það er kortér í kosningar og byltingin er á síðasta söludegi! Aldrei hefur riðið meira á að Nýhil, eina forlag Íslands sem eitthvað mark er á takandi, stolt eins og þaninn vindhani með brjóstið upp í norðangarra, kynni komandi dagskrárlið: Ljóðabókina Handsprengja í morgunsárið - baráttukvæði.

Þakka þér fyrir að þakka mér e. Charles Bernstein

Charles BernsteinÞetta er fullkomlega
aðgengilegt ljóð.
Það er ekkert
í þessu ljóði
sem á nokkurn
hátt er erfitt
að skilja.
Öll orðin
eru einföld &
hitta í mark.
Hér eru engin ný
hugtök, engar
kenningar, engar
hugmyndir til að rugla
í þér. Það eru engir
intelektúal-stælar í
þessu ljóði. Þetta er

Glæný ást

Teikniljóðið Glæný ást (Brand New Love) er eftir Lev Yilmaz. Þið getið séð það hérna og meira af stöffinu hans Lev er á sömu síðu.

Ljóðasamkeppni Nýhil og Verðandi

Ljóðelska ungmennafélagið Nýhil og Menntaskólablaðið Verðandi stóðu á dögunum fyrir ljóðasamkeppni. Valið var um bestastasta ljóðið, gróteskastasta ljóðið, rómantískastasta ljóðið, harmonískastasta ljóðið, dramatískastasta ljóðið, skastastasta ljóðið og vondastasta ljóðið. Við birtum hér eitt af sigurljóðunum – afganginn má lesa í Verðandi sem ætti að koma á göturnar í dag. Ef þið biðjið um að lesa meira getið þið semsagt lesið ljóðið sem var valið bæði það harmonískasta og það dramatískastasta.

FM 95,7

Hér fyrir neðan má heyra raunverulegt FM 957 slagorð frá 1998 sem nú er notað í sýningu Hafnafjarðarleikhússins á Draumalandinu. Ljóðið fann Andri Snær Magnason.

Smellið hér til að hlusta á ljóðið.

Án gæsalappa

Ljóðið sem birtist ef þið ýtið á “Lesa meira” sömdu þeir Gísli Hvanndal, Geir Haarde og Guðjón Arnar Kristinsson saman. Tregawöttin þora ekki að spá neinu um stjórnarsamstarf en þykir þetta einkar dularfull tilviljun …

Lesa meira …

Um hana systur mína

Klippiljóð

“Um hana systur mína” er klippiljóð eftir Andra Snæ Magnason. Það er samanklippt úr frétt í Morgunblaðinu um morð á Steinsstöðum í Öxnadal og úr bláu skólaljóðabókinni. Ljóðið sjá má í fullri stærð hérna - notiði stækkunarglerið.

Æviágrip

eftir Vijay Seshadri

Orwell segir einhvers staðar að enginn skrifi nokkurn tímann sína sönnu ævisögu.
Hin sanna saga mannsævi er saga niðurlæginga hennar.
Ef ég skrifaði þá sögu nú –
geislavirka allt til endaloka tímans –
gott fólk, ég sver það, augu ykkar myndu detta úr tóftunum, þið gætuð ekki rifið
hanskana nógu hratt
af höndum ykkar sviðnum af eldhríð þeirrar skammar.
Aumingja hendur ykkar. Aumingja augu ykkar
að sjá mig grátandi í herberginu mínu
eða drepandi hávöxnu, ljóshærðu konuna úr leiðindum.
Eitt sinn ásakaði ég hina saklausu.
Eitt sinn bugtaði ég mig og tilbað hina seku.
Ég tek enn viðbragð yfir því sem ég sagði eitt sinn við rústaðan gluggann.
Og eitt síðdegi í október, undir fuglatrénu
hvers fræbelgir voru að falla og mynda
lýsandi mynstur á gangstéttinni,
var ég gripinn skyndilegri gleði,
og einhver sá mig þar,
og það var hið versta af öllu,
sundurtætandi og ógleymanlegt.

Þýðing: Kári Páll Óskarsson

Sálumessa

vonnegutNú laust fyrir helgi lést bandaríski rithöfundurinn Kurt Vonnegut á heimili sínu í New York. Árið 2005 gaf hann frá sér bókina A Man Without a Country, og lét hann þau orð fylgja að hún yrði hans síðasta verk, eins og raunin varð. Ljóðið sem hér fer á eftir birtist á lokasíðum bókarinnar, en síðasta erindi þess hefur verið birt í minningargreinum stórblaðanna vestanhafs, með tilvísun í hve viðeigandi það er að höfundinum látnum. Hér birtist ljóðið hins vegar í heild sinni, og í íslenskri þýðingu.

3 ljóð e. Chris Reifert

FÍKINN Í BLÓÐ

Þvinga fram þorsta
fagurrauðan losta
þörfin að þurrka þig upp

varir mínar þrýsta á þitt svöðusár
sjáðu dauðann í augu mínum.

Mig þyrstir
ég drekk
hugsun þín hjaðnar
ég er fíkinn í blóð þitt
ég verð að fá blóð þitt.