[youtube]ahUdQd_YtwM[/youtube]
Archive for July, 2007
Vestur Eiríksgötu
N64°08’42’’/ V21°55’58’’
Þegar þú færð fjallþunga í herðarnar veistu að þú ert þegar á fjallvegi og þarft að auka hraðann svo þunginn búi ekki til holu í veginn og þú festist til frambúðar. Í óbyggðum í miðri borg er ekkert verra en hola á miðjum vegi og áttavilltur ökumaður í henni miðri.
En skammt undan er stuðlabergsturn með rauð augu sem horfa inn í dagana og kljúfa næturnar með geislum sínum. Í forgrunni að himni og skýjum í hæstu hæðum. Og á slaginu 16:05 á degi hverjum fyllist gatan af bílum á hægri ferð.
Það eru vaktaskipti.
Hundruðir hnúa um stýri með fjallrendur undir nöglunum og allan þungann sem því fylgir. Föl andlit á leið úr vinnu og ekkert í veröldinni sem minnir á rauðhærðan víking.
Вслед за клином лебединым
мысль моя летит к вершинам.
Кто поможет на пути нам?
Солнце на небе, свети!
Иль не нам путём единым
рука об руку идти?

Ljóðið fann Örn Úlfar Sævarsson
size:500
Þórarinn Björn Sigurjónsson
Voldugir tómir framandi steinar í vatnslausri eyðimörk
Tómir framandi steinar í vatnslausri eyðimörk
Framandi steinar í vatnslausri eyðimörk
Steinar í vatnslausri eyðimörk
Vatnslausri eyðimörk
Eyðimörk
Dmitri Prigov – 5. nóvember, 1940 – 16. júlí, 2007
Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl
M Y N D
Ástin mín hvarf í sumarhitanum.
Ég man enn hversu fallega
hárið hennar brann
meðan hún þræddi nálina,
stakk henni gegnum auga hans
og saumaði í það mynd af lítilli stúlku
sem stóð uppi á stól fyrir framan spegilinn
og fléttaði sítt hárið.
Hún lét sig dreyma um konur
í hvítum kjólum . . .
Smellið á reitinn “lesa nánar…” til að lesa nánar ljóð Hauks Ingvarssonar.
eða: Licence to Walk
“ólögleg” … þar átti ég við að þessi samtök höfðu ekki fengið tilskilin leyfi fyrir þessari göngu sinni. Það er því alveg rétt af lögreglu að skipta sér af þeim, en svo æsast leikar og þá þarf lögreglan að bregðast við.
Ég get því miður ekki bent á lagagreinarnúmerið, en þetta er það sem ég var að meina … leyfisleysið.
Ljóðið fann Ásgeir H Ingólfsson í kommentakerfi stebbifr.blog.is og er eftir Þorstein G Jónsson sem notar listamannsnafnið Doddi.
Ljóðið fann Ásgeir H Ingólfsson í hverfissjoppunni.