- sagan endurtekur sig -
Það er ekki líklegt að mörg innblásin trúarljóð hafi verið ort þegar kristni var lögtekin á Þingvöllum árið 1000. Skáldin hafa væntanlega átt í hinum mestu vandræðum með að yrkja um Krist vegna þess að hin nýja trú kippti grundvellinum undan ljóðahefðinni. Dróttkvæða hefðin stóð nánast berstrípuð eftir trúskiptin. Gamla skáldamálið sem var undirlagt af heiðnum heitum, kenningum og goðsögnum var úrelt. Hvernig átti skáld að nota gjöf Óðins eða Kvasis dreyra til að lofa Hvítakrist? Tungumálið var ónýtt og táknheimurinn hruninn og skáldin þurtu að finna sér nýtt tungumál til að tjá trú sína í ljóði. Menn bjuggu til nýjar kenningar eins og himnasmiður, yfirbjóðandi engla, skapari jarðar. Það gekk ekki að blanda þessum heimsmyndum saman, jörðin var brúður Óðins og móðir Þórs. Augljóslega var ekki hægt að tala um Guð sem skapara Óðins brúðar.
Kynlífssviti, það er besta lyktin, að ganga út af tælenskum veitingastað og finna hvernig lyktin af kynlífssvita blandast opíumreyknum frá götumellunum í hitamollunni um leið og maður sér eftir því að hafa skitið í síðbuxunum og maður er dálítið hræddur við að verða bældur en maður veit samt að næstu tvær skitur verða skemmtilegar. Kynlífssviti, það er ævintýralyktin og þegar maður maður finnur sömu lykt við Hlemmtorg þá fær maður fiðring í magann og sér eftir því að hafa farið í buxur og heldur að næstu tvær ferðir verði alveg frábærar.
Páll Tómasson
væri ör
sem framvinda er gagnvart
viðvart gagnvart
lúðrasveit
léttúðug segjum sem svo
að maðurinn sem skrifaði
kapítalistar
eru eins og prestar
væri ekki margfjáður
blikkblikk
og öllum greftri
lokið
segjum sem svo fréttirnar
fréttirnar segðu sem svo
og kæmu á áfangastað
á hverju einasta eiturlyfja
lygna götuhorni
það er nú sem við verðum að byrja
að safnast saman, það er nú, þessi framtíð
engin framtíð, þessi
Kaia Sand
Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl
Í byrjun var Öskur
Sem gat Blóð
Sem gat Auga
Sem gat Ótta
Sem gat Væng
Sem gat Bein
Sem gat Granít
Sem gat Fjólu
Sem gat Gítar
Sem gat Svita
Sem gat Adam
Sem gat Maríu
Sem gat Guð
Sem gat Ekkert
Sem gat Aldrei
Aldrei Aldrei Aldrei
Sem gat Kráku
Öskrandi fyrir Blóð
Lirfur, brauðskorpur
Hvað sem er
Skjálfandi fiðurlausir olnbogar í skít hreiðursins
Ted Hughes
Þýðing: Emil Hjörvar Petersen
I
Uppfull
af hégómagirnd
og klisjum
ber ég á mig
gervirauðar varir
og segist
ætla að elska þig
við allar aðstæður
Segðu mér svona aðeins
hvernig það er
að ganga einn á fjöll,
hittir maður ekki fyrir
álfa og tröll?
Lára Ómarsdóttir
Í fréttatíma Stöðvar 2,
1. Ágúst 2007
Róttæk þýðing: Kristian Guttesen
Bréf
Kæru heimspekingar, ég verð dapur þegar ég hugsa.
Er því eins farið með ykkur?
Þegar ég er í þann mund að sökkva tönnunum í noumenon
kemur einhver gömul kærasta að trufla mig.
„Hún er ekki einu sinni á lífi!” hrópa ég upp til skýjanna.
Vetrarbirtan beindi í mér í þá átt.
Ég sá rúm, umbúin öll með sams konar gráum ábreiðum.
Ég sá hörkulega menn halda nakinni konu
á meðan þeir sprautuðu á hana köldu vatni.
Var það til að róa taugar hennar, eða var það í refsingarskyni?
Ljóðið „berwick“ er ekki eftir neinn höfund og ef ég hefði ekki lesið þetta ljóð er ekki víst að nokkur manneskja hefði lesið það nokkru sinni. Þetta er torskilin runa af orðum, sumar samsetningar finnast mér nokkuð svalar, „bridge minus brookside“, „diabolic freeing quicklime“. Markmiðið var líklega ekki að búa til heildstætt ljóð, orðunum var raðað saman af tölvu til þess að lauma til mín ruslpósti frá „RX meds“. Markmið orðarununnar var að til mín bærist nýtt tilboð á VIAGRA standpínulyfi. Netþjónar heimsins hafa komið sér upp síum sem greina mynstur í tölvupóstsendingum, ef þúsundir skeyta reynast samhljóða og koma öll úr sömu átt ályktar forritið að um fjöldasendingu sé að ræða og því er póstinum eytt áður en hann kemst til skila. Til að sjá við þessu hafa ruslþrjótar hannað forrit sem búa til tilviljanakenndar orðarunur til að fylla neðsta hluta skeytanna. Ljóðið berwick er ein þeirra.
Hvaða tilgangi þjónar það, vildi ég gjarnan vita, að skipta um íbúð,
skilja eftir sig kjallara svartari
en orðspor mitt – og þá er mikið sagt –
hengja upp hvít gluggatjöld
og fá sér þjónustustúlku,
snúa baki við bóhemlífinu,
ef svo kemur þú, plága,
óboðni gestur, fáviti klæddur í fötin mín,
afæta, ónytjungur, bjáni,
með hendur þínar þvegnar,
til að borða af disknum mínum og skíta út íbúðina?