Archive for September, 2007

Úr Á morgun eru kerfin aftur til e. Lars Skinnebach

Lars SkinnebachÁ morgun eru kerfin aftur til. Sveitarfélögin
Reglubundinn svefn lífgar uppá
Ónæmisvarnirnar ganga fylktu liði í dag. Ah, ég er svo hraustur
Það er huggun. Léttir. Það er ennþá nótt
í litlu heilunum, þeir reykja hass í húsunum, í íbúðunum
óendanlegur vetur. Eða óendanlegt sumar. Eða hvíla sig
í rauðum blóðskrokkum. Elskan mín, heyrirðu í þeim dreyma
um betra líf? Það er þögn í höllinni. Hann er svo
Stinnur rassinn þinn,

[án titils] e. Atla Bollason

án titils

Framleiðsla fjandmanna e. Leif Holmstrand

Maður þvælist aðallega bara um þennan vinnustað.
Konurnar, þær sem hér eru, grípa til vopna þegar þær æsast,
að minnsta kosti þær nýráðnu.
Andrúmsloftið er annars ágætt.

Gestinum mætir þögul undran, þessar venjulegu spurnarleysur.
Herbergið opnar kaldan faðm sinn. Tvístígur, brýnir raustina
og segist vera
hugmyndafræðilega hlynntur þessu verkefni sem hungrar í gæsku:
hér finnast fullkomnar rýmingaráætlanir, hreinar fyrirætlanir
og forvitnir áhorfendur,
kannski dálítið karlmannlegir.

Annað ljóð úr Skrá: álagaferli e. Sean Bonney

Rasistavalíumið fágað skreið úr kafi
júlíflugeldanna. Það slakaði á
allir voru einstakir
viðburðir, dálítil rauð doppa
á félagsvömbinni. Hver og einn
hreyfði sig. Eina mínútuna röð
samtengdra herbergja, síðan
svo skyndilega innsiglað rými.
Á þennan hátt virka skrifstofur
með opið skipulag, einkavæðingin
er þetta nákvæm. Markaðurinn var viss
um að hrærast ekki. Hver
félagsleg athöfn markaðist af
frægum nöfnum. Ef þessi
subbu vefur virkaði ekki, var
skorið á úttaugaendana.

Framtíðin e. Henri Michaux (1899-1984)

Henri MichauxÞegar foh,
þegar foh,
forarvilpurnar,
formælingarnar,
þegar fohohohohornar,
fohohorrornar,
fíhíhívívíveikindívurnar
brúmmbúrúmmvrúmmveikleikvellirnir,
honsjúkarakonsjúrnar,
hordanóplópeyjurrnar í puru para puru,
höfuðsaurindin glóseruð,

3 ljóð úr Wide Slumber for Lepidopterists e. a.rawlings

a.rawlingsMeðal þátttakenda í 3ju alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils er kanadíska skáldið a.rawlings. Á heimasíðu Pennsound má finna upplestra úr bók hennar Wide Slumber for Lepidopterists.

Prologue (1:22)
Egg O Insomnia (5:39)
Apnea (2:46).

Angela bloggar á commutiny.blogspot.com.

A Male Nurse e. Leif Holmstrand

Ljóðahátíð Nýhils 2007Sænski listamaðurinn og ljóðskáldið Leif Holmstrand verður gestur ljóðahátíðar Nýhils 2007, 12.-14. október næstkomandi. Ljóðahljóðverkið sem hér er boðið upp á heitir A Male Nurse, og birtist fyrst á geisladisknum AudiOEI, sem sænska tímaritið OEI gaf út. Smellið hér til að hlusta á ljóðið, og hér til að hlusta á önnur verk af sama disk, þar með talin fleiri ljóðahljóðverk frá Leif Holmstrand.

Fréttatilkynning frá Nýhil: Ljóðabók á 1.000 kr.

Forsala Fönixins hafin: Þúsundkall!Eiríkur Örn Norðdahl

Í byrjun nóvembermánaðar kemur út ljóðabókin Þjónn, það er fönix í öskubakkanum mínum eftir Eirík Örn Norðdahl, hjá Nýhil. Bókin er vel ríflega 200 síður og inniheldur m.a. 50 blaðsíðna ljóðabálk um liðhlaupa úr Þorskastríðinu, 8 blaðsíðna ljóðahljóðabálkinn Einræðisherrarnir, og 60 blaðsíðna róttæka endurvinnslu á Tímanum og vatninu eftir Stein Steinarr, auk ljóðsins Parabólusetning, sem hlaut viðurkenningu í Ljóðstafi Jóns úr Vör fyrr í ár, og fjölda annarra ljóða, bæði ljóðmælandi og framúrstefnandi nýmæla í íslenskri ljóðagerð.

Ljóð úr Skrá: álagaferli e. Sean Bonney

Sean Bonneyog ef þeir bíta þig
þarftu eitur og það snöggt
kvíðaskeyti: taktu hann í gíslingu
fölnandi rauður hnöttur inni í
stolnum vöðva hans, hugsaðu um hann,
hann er nágranni minn. Ég
hef matað hann og nú
er ekkert lengur en
við munum skipta, hann er
úthrópsleigjandabýtti, er
ímyndarskáldskapur, er

Finndu í hjartanu (Bæn fyrir rödd, brjóstkassa og einveru)

Tregawöttin mæla með flutningi ítalska ljóðskáldsins Claudio Pozzani á ljóðinu sem titillinn vísar til, en flutninginn má sjá á vefvarpi mbl.is hér og viðtal Dags Gunnarssonar við skáldið má svo sjá hér. Pozzani er gestur bókmenntahátíðar og mun eiga lokaorðið á henni rétt fyrir klukkan fjögur næsta laugardag.