Það trúir þeim enginn. Rúðurnar þeirra brotna.
Það rignir á garðana þeirra og börnin
þeirra eru svartklædd og fúllynd og föl.
Eiginkonum þeirra finnst gaman á hengingum:
Þær prjóna og hugsa um glæpi.
Lögreglan fær líka sína leigujörð:
Eins og við fær hún ekki greitt.
En baunir þeirra eru eins og grjót
og salatið eins og þari
og á tungllausum kvöldum koma svartir menn
- Af disknum: Mása-jól I
Ég trúi því ei
hve allt er nú breytt
Ég leitaði reðri að
en fann aldrei neitt
Í vonlausri villu
var ævinni eytt
Ef fengi ég bara að vera í friði
þá mátti fólk stunda kynlíf fyrir mér
Ég stóð utan við allt þetta vesen
það gildir ekki lengur… því…
ég vil eiga reðrið með þér, með þér, meeeeð þér!
I. Skáldið í IKEA
Dag einn fyrir nokkrum árum þegar ég vann í IKEA lenti ég í því að samstarfsfélagar gengu hver á eftir öðrum til að óska mér til hamingju með ljóð dagsins í DV. Ég hváði uns mér var vísað að upplýsingatöflunni í stigapallinum við starfsmannainnganginn. Og viti menn, þar hékk úrklippa af greinarstubbi úr blaði dagsins á undan undir titlinum „Ljóð dagsins“, ásamt mynd af mér og vefslóð á bloggsíðuna mína. En textinn var ekki eftir mig, hann var eftir Elías Jón Guðjónsson, þáverandi formann Stúdentaráðs Háskóla Íslands. „Ljóðið“ var eftirfarandi, þótt ég muni línuskiptinguna ekki nákvæmlega:
Það mun því kosta meira en að
lýsa upplifun sinni af evrópskum
borgum til þess að bæta borgina,
það mun kosta hugarfarsbreytingu,
endurskoðun á lífsstíl Reykvíkinga.
Það er því borin von að ræða um
betri borg fyrr en við erum tilbúin
til þess að endurskoða lífsstíl okkar.
Jónína Leósdóttir rithöfundur hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Miðbæjarmynd“ í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Jónína Leósdóttir er sjötti handhafi verðlaunanna frá stofnun samkeppninnar árið 2002. Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, að kvöldi afmælisdags Jóns úr Vör, 21. janúar.

Ef tré væru skrifandi
skrifuðu þau á bókfell.
Þau myndu flysja okkur og úr hryggskinni okkar
verka fínasta bókfell.
Þau myndu skrifa á það, texta,
texta trjáa, háleitan,
þar stæði að mannaumingjana bæri að vernda
og að nú liði þeim vel.
Til stendur að gefa út bókina Af steypu hjá Nýhil, sem kemur út í Afbókaseríunni. Bókinni Af steypu er ætlað að fjalla um efnisleika ljóðlistarinnar í samtímanum, á víðum grunni, til dæmis konkret-ljóðlist, myndljóðlist, hljóðljóðlist, og ljóðlist sem notast við “fundið tungumál”, eða “afmyndað tungumál”, og sértæka aðferðafræði eða hömlur við skriftir. Leita ritstjórar að þýðingum á slíkum ljóðum - bæði hefðbundnum og róttækum (t.d. hómófónískum eða aðferðafræðilegum) - sem og frumsömdu efni af slíkum toga. Þá er einnig leitað að frumsömdum og þýddum greinum, um afmarkað efni eða almennt, innan þema, og tillögum að birtingu ljóða á frummáli (t.d. myndljóða). Hafi einhver áhuga á að leggja hönd á plóg með þýðingar, er rétt að hafa samband við ritstjórana, Eirík Örn Norðdahl og/eða Kára Pál Óskarsson, og annað hvort benda á greinar/verk sem þið mynduð vilja þýða, eða spyrja hvaða greinar/verk bíða þýðingar, en þegar er búið að velja nokkuð af erlendum greinum og verkum til birtingar. Kári Páll Óskarsson (kpo@hi.is) og Eiríkur Örn Norðdahl (kolbrunarskald@gmail.com)
Fjórir létust og 15 særðust í sprengjuárás á mosku súnní-múslima í Bagdad. ESB heitir því að stuðla að auknum samskiptum austurs og vesturs í ljósi skopmyndadeilunnar. ESB veitir Palestínu tímabundinn fjárstyrk. Mexíkósk stjórnvöld frömdu þjóðarmorð á árunum 1964-1982 samkvæmt nýrri skýrslu. Þrjú lík afhent og 30 slösuðum hleypt út úr afgönsku fangelsi. Byssumaður í Detroit myrti konu í kirkju og særði tvo aðra áður en að hann tók eigið líf. Þjóðverjar neita því að þýskir njósnarar hafi útvegað Bandaríkjamönnum varnaráætlun Saddams. Pakistanskar konur mótmæla skopteikningum. Árlegur listi yfir 10 verstu einræðisherra heims birtur. Sprenging í hergagnaverksmiðu í Ísrael. Útgöngubanni í Írak aflétt. Ávísun Palestínumanna vegna bensínkaupa reyndist innistæðulaus. Lestarteinar sprengdir upp í Pakistan og lest fór af sporinu. Saddam hættur í hungurverkfalli.
Sem nemandi í grunnskóla lærði ég
að maðurinn væri eina skepnan
sem stundaði kynlíf sér til skemmtunar
og sú eina sem notaði verkfæri
(þó ekki endilega í tengslum við kynlíf).
Í dag skilst mér að allar skepnur ríði líka
just for the fuck of it
og maðurinn er sá eini sem notar verkfæri
til að búa til önnur verkfæri.
Heilar kynslóðir á undan mér skeggræddu
um hvernig verkfæri búa til stéttaskiptingu
Ég hef þó meiri áhuga á að vita hvernig
verkfæri breyta hugsun okkar.
ó að vera í finnlandi
eftir að rússarnir komu)
syng lágt
ljúfi hand
far
an gur
(láttu frelsin ganga pápi eða
sælokk frændi missir áhugann