Archive for May, 2008

Af borgarastríði e. Jean-Michel Espitallier

I

Vinir vina minna eru vinir mínir
vinir óvina minna eru óvinir mínir
óvinir vina minna eru óvinir mínir
óvinir óvina minna eru vinir mínir

(Ég vil helst ekki þurfa að endurtaka þetta)

Fundið ljóð: Fritzl

Ljóðið fann Arngrímur Vídalín á vísi.is.

Blóðljóðablöndunarkvöld Nykurs

Á tímum þegar ráðamenn fórna höndum, þegar Öryggisráð virðist skipta öllu máli, og þegar matar- og bensínverð vex samhliða græna litnum, er ekkert sem stöðvar skáldin í að bjóða upp á ókeypis menningu. Skáldafélagið Nykur stendur fyrir þéttri og öflugri ljóðadagskrá næstkomandi sunnudagskvöld, 18. maí, á efri hæð Barsins (með stóru b-i). Á boðstólum eru reynd skáld, hálfreynd skáld og fersk skáld; sannkölluð blóðljóðablöndun.

Nykurskáld:
Emil Hjörvar Petersen
Guðmundur Óskarsson
Halla Gunnarsdóttir
Oddur Sigurjónsson
Sigurlín Bjarney Gísladóttir
Sverrir Norland
Toshiki Toma

Gestaskáld:
Ísak Harðarson
Kristján Ketill Stefánsson

Skáldskapurinn hefst kl. 21:00 og verið öll velkomin!

Haglabyssa e. Rebeccu O’Connor

Þau geymdu hana inni á baðherbergi,
hangandi fyrir ofan sápuskálina.
Byssuskeftið einsamalt dugði
til að mölva hvolpshöfuð;
á tíkurnar nægði eitt einasta skot.
Hann tók hana niður, dró út pinnann,
hlóð og spennti gikkinn,
ýtti aftur ímyndaðri derhúfunni,
beindi byssunni að refnum,
brenndi af gegnum fjóra veggi -
yfir rúm systur sinnar, gegnum jesúmyndina,
stól föður síns, gafl vöggunnar
og á kaf í börk trésins.
Rebbi var dauður.
Og höggið fleygði honum utan í vaskinn,
braut úr honum fyrstu barnatönnina.

3 ljóð úr nýrri bók eftir Sólveigu Maríu Svavarsdóttur

Farvegur

Litla stelpan
í gula kjólnum
með
hvolpinn.

Litla stelpan
með tárvota
hvarma.

Litla stelpan
í stutta
pilsinu.