[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=yW3SRscjEsw[/youtube]
Garðskálinn er risinn úr hýði sínu eftir langan – en fagurfræðilega nauðsynlegan – vetrardvala, en þeir Jón og Arngrímur láta engan bilbug á sér finna fremur en venjulega. Ef eitthvað er mæta þeir hálfu stórkostlegri til leiks í því augamiði að rífa sljóan almenning uppúr dróma sainnuleysis og heimsku (með fullri hógværð).
Garðskálinn er stoltur að kynna glænýja byltingakennda kenningu um endalok hinnar þrúgandi kúgunar landsins ungskálda, sem hingað til hafa ráðið allri bókmenntaumræðu með viðurstyggilega skrúðmæltu náðarvaldi sínu!
Þátturinn er næstum því í lit að þessu sinni, fyrir utan að litarásirnar á myndavélunum voru bilaðar og að settið á til að skipta litum alveg að óvörum, sem hefur slæm áhrif á ljósnæmi viðkvæmra vélanna. Arngrímur var að kaupa sér nýja skyrtu sem hann bara varð að sýna utan á sér. Jón var í sömu fötum og alltaf.
Ég var að lesa það í kommenti við http://agust.eyjan.is/2008/06/mur-sem-misyrma.html að þið væruð þarna að reyna að vera gáfaðir á kostnað Ágústar Borgþórs; er það satt?
Drengir, ég get ráðlagt ykkur eitt: Leave the comedy to professionals. Fólk flissar vissulega, en ekki með ykkur heldur að ykkur. Ef þið viljið verða að mönnum þá verði þið að taka bókmenntum alvarlega, en sem hin rétta leit að sannleikanum verða þær aldrei fyndnar. Sagði Aristóteles ekki einmitt að saga kómedíunar væri óljós þar sem fólk hefði aldrei tekið kómedíuna alvarlega (Hér umorða ég vissulega verulega til að koma betur frá mér ákveðnum punkti sem er minn en ekki einhver annars og hugsanlega ekki í upprunlega hugsunagangi Aristóteles að nýtast sem vopn gegn tveimur spjátrúngslegum háskóladrengjum sem röfla um eitthvað í einhverju netvistuðum gamanleik, sem er hið lægsta form bókmenntasögunar, nei það var væntanlega ekki tilgangur hans að nýtast mér eða öðrum sem vopn í slíkri umræðu en hitt er annað mál að ég efa ekki að Aristóteles hefði þótt LISTSKÖPUN ykkar frekar ómerkileg). Aristóteles sagði að saga kómedíunnar væri óljós, því fólk hefði ekki tekið hana alvarlega og er það ekki svolítið sem þið reynið að gera með þessum gjörningi ykkar að gengisfella bókmenntirnar. Herrar mínir, við erum að mörgu leyti einstök þjóð! Reykjavík er nyrzta höfuðborg í heimi. Lundinn er hér fjölmennur. Við erum afkomendur norræna víkinga og írskra þræla. Í okkar sameinast hetjumóð og þrælslunda. Hver einasti íslendingur hefur persónueinkenni dýrlinga og píslavotta. Á sjö daga fresti hrynur allt og á sjö dögum rís allt upp aftur. Við gefumst aldrei upp. Við erum bókmenntaþjóð. Við eigum nóbelsverðlaunahafa. Það mun engin íslendingur, ekki einu sinni tannlaus leikskólabörn, sitja aðgerðarlaus á meðan þið ofdekruðu menntamenn ráðist að menningu þjóðarinnar. Þið ættuð að skammast ykkar. Ég ásaka ykkur fyrir verstu glæpi sem ég get hugsað mér að nokkuir maður fremji, að skemma með háði og með það eitt markmið að skemmta sér og öðrum. Vinir mínir, niðurrifið er ljótt og enginn hlær, hver er þá tilgangurinn með þessu öllu? Þið ættuð að skammast ykkar. Ég legg til að Garðskálinn verði lagður niður.