Tíminn er ekki liðinn
fyrr en veraldarskeiðið
er á enda runnið.
Munu fyrri stefnur
úr mannlífsflórunni
vakna til lífsins
og upp hefja að nýju
lífsins ádrepu.
Í krafti orðsins
eða hvers sköpunarmáttar
opna vitund þjóðar
draga dár
að tíðarandanum
og hvetja til uppreisnar
í mannvitsbrekkunni.
Bjarni Bernharður
0 Responses to “Stefnur e. Bjarna Bernharð”