Dömur mínar og herrar, þá er komið að því! Eftir margra mánaða yfirlegu rísa Tregawöttin upp úr djúpinu að nýju og völlurinn er meiri en nokkru sinni fyrr! Eitt sinn birtust stakar færslur óreglulega - en nú koma heilu tölublöðin með tveggja mánaða fyrirvara, og nýtt þema og nýr ritstjóri í hvert sinn. Fyrsta tölublaðinu ritstýrði Eiríkur Örn Norðdahl með þemanu „Leikur“ - því næsta ritstýrir Jón Örn Loðmfjörð með þemanu „Usli“ (hægt er að senda Jóni efni hið snarasta á jonorn@gmail.com) og er von á því þann 1. desember næstkomandi.
28 aðilar koma að fyrsta tölublaðinu - þar af tvær hreyfingar og fjöldinn allur af útlendingum (í þýðingu og sinni eigin heimatilbúnu íslensku) og íslendingum á hinum ýmsustu tungumálum (við erum múltíkúltí).
Smellið hér fyrir herlegheitin.
Efnisyfirlit gæti litið svona út:
Ritstjóraspjall: EÖN útskýrir markmið sín í ritstjórastól
Útláísl: a.rawlings, Marko Niemi, Derek Beaulieu, Jon Høyer, Anonyme Breve, Hugh Thomas og Gary Barwin skrifa orginal texta á íslensku, hvert með sínu eigin nefi (án þess að kunna málið).
Áræði: Áræðishópurinn sýnir brot úr bókverki sínu, hinni umskrifuðu Á bláþræði.
Danskt lípógram: Hugh Thomas yrkir án danskra bókstafa.
Garðskálinn: Herra Vídalín og herra Loðmfjörð ræða leikaraskap.
Ævintýri sjúklegu stelpunnar: Brot úr bók Unu Bjarkar Sigurðardóttur.
Viðtal við Steinar Braga.
Pípari ástarinnar: Haukur Már Helgason og Bryndís Björgvinsdóttir stunda kyngervisusla.
For Susanna: Mansöngur HMH á ensku, þýsku og íslensku.
Hefnd skálds og gagnrýnanda: Ritgerð eftir Charles Bernstein.
Iceland Report on the Observance of Standards and Codes: Hljóð&myndljóð eftir Eirík Örn Norðdahl.
Úr Húðlitri auðn Kristínar Eiríksdóttur í danskri þýðingu Ninu Sos Vinther.
Flarf: Ljóð eftir Linh Dinh. K. Silem Mohammad, Ritu Dahl, Nödu Gordon, Shönnu Compton, Sharon Mesmer, Stan Apps og Rodney Koeneke.
Opið bréf til Georges Bataille: Kári Páll Óskarsson.
3 ljóð eftir Kára Tulinius.
Oj, mér finnst þetta glatað Eiríkur!
Gamalt ástarljóð frá Hauki Má til einhverjar Sússu og plumberinn yfir því!
BB