| Saga Garðskálans | Stjórnendur | Ummæli |
Haukur Már
Haukur Már Helgason er rithöfundur fæddur árið 1978. Meðal útgefinna verka má telja ljóðabækurnar 2004 og Rispa jeppa og skáldsöguna Svavar Pétur & 20. öldin. Til er önnur bók sem Haukur Már gengst ekki við að hafa skrifað, en það er Riddarinn sem var ekki eftir Italo Calvino.
Haukur Már er fyrsti gestur hins sívaxandi Garðskála.
I. Þessi bók er ekki þessi bók
Svo virðist vera sem einhver hafi laumað dularfullri fölsun af bók eftir Italo Calvino inn á bókasöfn og bókabúðir landsmanna, jafnvel í von um að vænkast sjálfur af vinsældum annars manns!
II. Samband miðaldramanna og ungskálda
Garðskálinn er stoltur að kynna glænýja byltingakennda kenningu um endalok hinnar þrúgandi kúgunar landsins ungskálda, sem hingað til hafa ráðið allri bókmenntaumræðu með viðurstyggilega skrúðmæltu náðarvaldi sínu!
„… fengur að því að þið fjölluðu bara um bókmenntir í fullri alvöru”
Ágúst Borgþór Sverrisson, rithöfundur.
„Þessir þættir eru très bien, mjög í takt við það sem er heitast í svona dagskrárgerð í útlöndum, og umfjöllunin er profonde”
Kári Páll Óskarsson, þýðandi og skáld.
„Ég vil mótmæla harðlega þeim ásökunum sem komu fram í síðasta þætti [Samband miðaldramanna og ungskálda] … Ég krefst þess að afsökunarbeiðni verði birt í morgunblaðinu.“
- Eyvindur Karlsson, rithöfundur
„Mér fannst RÚV alltaf betri með tæknimálin en þið strákar.“
- Haukur Már Helgason, rithöfundur.
„Djúpt […] Ég fylgist spennt með. Þetta er miklu skemmtilegra en samkeppnisaðilinn“
- Harpa Jónsdóttir, (verðlaunaður) rithöfundur.
„Ég þoli skensið.“
- Sjón, (margverðlaunaður) rithöfundur.
„Það er mjög mikilvægt fyrir listamenn að fíflast - taka sig ekki of hátíðlega.“
- Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður.
„Þetta er fáránlega mikil snilld!“
- Kristín Svava Tómasdóttir, verðlaunað skáld og viðurkenndur bjargvættur ljóðsins.
„Mér fannst þið vera búnir að negla stemmninguna og lúkkið.“
- Helgi Jóhannsson, grafískur hönnuður Páls Óskars fyrir myndbandið við Allt fyrir ástina.
„Þátturinn hefur gefið mér inspirasjón í rappinu og körfuboltanum. Mér finnst ég verða ljóðrænn í hreyfingum á því að stúdera hvern þátt.“
- Kjartan Atli Kjartansson (KáJoð) rappari og körfuboltamaður.
„Til marks um hámenningarlegt gildi Garðskálans má nefna að ég skil hann ekki.“
- Sævar Guðmundsson, varaformaður Heimdallar.
„Gaman af þessu, skemmtilegar pælingar. Fínar pælingar. Ætla að líta á þetta betur á morgun, sá vefinn, margt mjög gott. Alltaf gaman af því að pæla hlutina :)“
- Stefán Friðrik Stefánsson, bloggari..
„Áhugavert. Bíð spenntur eftir næsta þætti“
- Hörður Halldórsson, tökumaður (við vitum ekki hvaða gaur þetta er).
Garðskálinn er hugverk Jóns Arnar Loðmfjörð og Arngríms Vídalín, sjónvarpsþáttur með heimastöð á Tíuþúsund tregawöttum sem fjallar um bókmenntir - þá fyrst og fremst ljóðlist - utan rígbundinna marka staðnaðrar orðræðu. Garðskálinn er ekki fyndinn. Garðskálinn er ekki sniðugur. Þetta er bókmenntaþáttur fyrir alþýðuna og sem slíkur er hann með enga stæla,sykurmola og kaffibolla - við trúum á mátt hins almenna manns til að losna undan kapitalismanum í krafti ljóðsins.
Talið er að Garðskálinn hafi hafið göngu sína vegna þess að Arngrími og Jóni Erni leiddist að reykja og drekka á Hressingarskálanum. Í anda ungs rithöfundar á reykjavíkursvæðinu, sem hafði nýverið fært markaðssetningu bókmennta upp á æðra plan, ákváðu þeir félagar að færa drykkjuna upp á næsta stig og framleiða sína eigin bókmenntaþætti, við einróma lof öreigastéttar íslenskra menningarvita.
Fljótlega kom þó í ljós að þátturinn varð ekki múlbundinn, og að hæfileikar þáttastjórnendanna tveggja væru of miklir fyrir aðeins eina iBook-myndavél, og nærvera þeirra (præsancaise’s á frönsku, er okkur sagt) of mikilfengleg fyrir Hressingarskálann einan. Framhaldið þekkja allir, enda hefur Garðskálinn fyrir löngu öðlast sess í hjarta landsmanna.
Stjórnendur:
| Arngrímur Vídalín er klassískur ljóðarúnkari sem gengur með hatt og finnst lífið alltaf erfitt - sama hvað, til dæmis eru einu íþróttameiðsli hans eftir að hafa staðið við kassa í IKEA of lengi. IKEA-dvölin (líkt og Italíu-dvölin, þar sem hann fæddist) er honum enn mikill innblástur, hann er eina ljóðskáldið sem fróðum mönnum er kunnugt um sem hefur ort ljóð um skilgreiningar á sófum: þið sem kelið í tveggja sæta stól / og víðáttu hvors annars kannið / ef þið roðflettið girndina / ekki þrífa sófann / stóll með tvö sæti er ekki sófi“. Fróðum mönnum þykir Arngrímur ekki bara merkilegt ljóðskáld heldur er hann líka sá eini sem kom ekki útúr píku heldur af stofnun. (endurtekning fyrir fagurfræðina). Arngrímur kom ekki úr píku heldur af stofnun. | ![]() |
![]() |
Jón Örn Loðmfjörð er fremsta digitskáld Íslands en þó oftast kallaður flissskáldið af vinum sínum. Við í Garðskálanum flissum hinsvegar ekki yfir hugmyndum Jóns, sem hann fær öllum stundum sólarhringsins þúsundum saman, og ekki er séns að framkvæma á einni mannsævi svo gott sé. Þess vegna birtist aðeins það besta í Garðskálanum. Jón Örn fæddist úr píku eins og flestir aðrir. |
Hörður Halldórsson er gaurinn með myndavélina. Við eigum enga mynd af honum. Við vitum ekkert um hann.



