Ritstjórn Tíu þúsund tregawatta lýsir eftir hvers kyns ljóðatengdu efni og má meðal annars nefna:
- Ný íslensk ljóð.
- Gamlar (gleymdar) perlur.
- Ljóðaþýðingar.
- Viðtöl.
- Dóma um nýjar, gamlar og erlendar ljóðabækur.
- Greinar um ljóðlist.
- Ábendingar að góðum greinum, ljóðum eða öðru ljóðatengdu.
- Ljóðahljóð.
- Myndljóð.
- Brot úr nýjum ljóðabókum
- Tilkynningar um ljóðatengda viðburði hvar sem er á landinu.
- Tilkynningar um nýjar ljóðabækur.
- Aðrar ljóðafréttir (útsölur, uppboð, andlát, fæðing, sigur, tap…)
Texti sendist á tiuthusundtregawott@gmail.com, annað hvort sem word-skjal eða texti í tölvupósti. Myndir sendist sem .jpg eða .gif og hljóð sendist sem mp3. Vakin skal athygli á að erfitt getur reynst að eiga við flóknar uppsetningar á ljóðum í html-i, nákvæma inndrætti og annað slíkt.
Ritstjórn skipa:
Ásgeir H Ingólfsson
Eiríkur Örn Norðdahl
Hildur Lilliendahl
Kári Páll Óskarsson
Ingi Björn Guðnason
Ingólfur Gíslason