Að færa sig um einn rass eða: Þar sem sólin skínInn á milli holra skugga alnetsins má finna eitt skínandi ljós – mýrarljós kannski eða vitaljós (vítaljós?) – en spurningin er kannski ekki hvaða leið ljósið vísar heldur einfaldlega hitt að það skuli benda eitthvað; þó ekki sjáist hvert er verið að benda er jafn víst að bendingarnar sjást hvaðanæva að: Það eru engin áskriftargjöld og engin tölublöð.Eins og gildir um svo margt sem er fagurt í heiminum er ekki beinlínis hægt að segja frá því hvernig Tregawöttin tíu þúsund urðu til. Það skiptir kannski heldur ekki máli. Það eru sjö einstaklingar sem bera ábyrgð á þeim, í stafrófsröð: Ásgeir H. Ingólfsson, Eiríkur Örn Norðdahl, Hildur Lilliendahl, Kári Páll Óskarsson, Ingi Björn Guðnason, Ingólfur Gíslason og Þórarinn Björn Sigurjónsson.Hugmyndin er kannski, í sem fæstum orðum, sú að breyta rétt.Eða valda óskunda.
Íslensk ljóðlist – það byrja of margar setningar á þessum tveimur orðum.
Íslensk ljóðlist er ýmist þreytt eða þrútin af ást. Ýmist angurvær kúrandi eða skjálfandi af taugaveiklun.Íslensk ljóðlist er ekki það sem mestu skiptir. Ljóðlistin er það sem mestu skiptir. Hér er landamæraleysið algert skilyrði. Til að landamæraleysi skipti máli þarf svo að flytja sig reglulega yfir landamæri. Myndirðu vera svo vænn að færa þig einn rass? Við erum á leiðinni á nýtt málsvæði. Leitum nýs útsýnis.Værirðu svo fáanlegur til að færa þig einn í viðbót?Það skiptir ekki öllu máli að sungið sé með. Að hvíslað sé í takt eða yfirgnæfð öskrin.Sónn nýs ljóðheims er ekki alltaf nýr. En samtónandi fjölhljómar fæða af sér undarlega millitóna.Við spilum með.Spilum í kross.Leitum millitóna.Og spilum gamlar melódíur.Breytum rétt og færum okkur um einn rass í einu.